← Omni Systems

Persónuvernd í sölustarfi

Síðast uppfært: 4. október 2026

Þessi síða útskýrir hvernig Omni Systems fer með upplýsingar um starfsfólk fyrirtækja sem við höfum samband við til að kynna þjónustu okkar. Persónuvernd notenda Loki er lýst á sérstakri síðu: Privacy Policy.

Hver ber ábyrgð

Omni Systems, rekið af BANANA Media ehf., kt. 610923-1350, Birkigrund 47, 200 Kópavogi. Netfang: [email protected].

Hvaða upplýsingar

Nafn, starfsheiti, vinnunetfang og vinnusími, fyrirtækið sem þú starfar hjá og saga samskipta okkar. Við skráum aldrei kennitölu einstaklinga, heimilisföng eða aðrar persónulegar upplýsingar.

Hvaðan þær koma

Af vefsíðum fyrirtækja, úr ársreikningum og tilkynningum til Kauphallar, úr fréttum, og frá þér sjálfri eða sjálfum. Við skráum hvaðan hver upplýsing kemur og segjum þér það ef þú spyrð.

Til hvers og á hvaða grundvelli

Til að kynna fyrirtæki þínu þjónustu okkar og halda utan um samskiptin. Grundvöllurinn er lögmætir hagsmunir okkar af því að kynna þjónustu fyrir fyrirtækjum, sbr. f-lið 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar, sbr. lög nr. 90/2018.

Geymsla og eyðing

Upplýsingarnar eru geymdar í gagnagrunni innan EES. Þeim er eytt 12 mánuðum eftir síðustu samskipti ef ekkert verður úr þeim. Ef þú biðst undan frekari samskiptum skráum við það strax og höfum ekki samband aftur. Þá geymum við aðeins netfangið eða símanúmerið á lista yfir þá sem ekki vilja samband, svo það gerist ekki aftur.

Vinnsluaðilar

Supabase (gagnagrunnur, Frankfurt) og Google Workspace (tölvupóstur).

Réttindi þín

Þú getur hvenær sem er beðið um aðgang að upplýsingunum, leiðréttingu eða eyðingu, og andmælt vinnslunni. Svaraðu einfaldlega pósti frá okkur eða skrifaðu á [email protected]. Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).

Privacy in sales outreach (English)

Last updated: 4 October 2026

Controller: Omni Systems, operated by BANANA Media ehf., kt. 610923-1350, Birkigrund 47, 200 Kópavogur, Iceland. Contact: [email protected].

We hold the name, job title, work email and work phone of people at companies we approach, the company they work for, and our contact history. We never record personal ID numbers, home addresses or other private data. The data comes from company websites, annual accounts and stock exchange announcements, news, and from you. We record the source of every item and tell you if you ask.

We use it to introduce our services to your company and keep track of our conversations, on the basis of our legitimate interest (GDPR art. 6(1)(f), Icelandic Act 90/2018). It is stored in a database in the EEA and deleted 12 months after the last contact if nothing comes of it. If you ask us to stop, we record that at once and keep only your email or phone number on a do-not-contact list. Processors: Supabase (database, Frankfurt) and Google Workspace (email).

You can ask for access, correction or deletion and object at any time: reply to any email from us or write to [email protected]. You may also complain to the Icelandic Data Protection Authority (personuvernd.is).